09.02.2012 16:50
Leit að strokupiltum
Piltarnir tveir sem björgunarsveitir leituðu að í kvöld eru fundnir. Þeir fundust í veiðihúsi við bæinn Skeggjastaði í Svartárdal, þar sem þeir höfðu brotist inn. Þeir eru heilir á húfi, en þrekaðir. Veður á svæðinu var ágætt en hiti undir frostmarki og súld. Drengirnir voru einnig afar illa búnir til útiveru.
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Húnavatnssýslum og Skagafirði voru kallaðar út til leitar á áttunda tímanum í kvöld, en þá var tilkynnt að þrír drengir hefðu strokið af meðferðarheimili í Skagafirði. Skömmu síðar gaf einn þeirra sig fram en talið var að hinir tveir hefðu farið í Svartárdal, inn af Húnaveri. Það reyndist rétt.
Um sextíu björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni og óku þeir slóða og leituðu í útihúsum við bæi í dalnum. Þeir notuðust meðal annars við nætursjónauka og sögðu þá hafa verið afar gagnlega við leit, þótt þeir hafi ekki endilega ráðið úrslitum.
http://mbl.is/frettir/innlent/2012/02/08/strokupiltarnir_fundnir/