23.03.2012 18:54

Pajero til sölu

Nú er Pajeroinn okkar til sölu 

Pajero 2006 44" breyttur  ekinn 34455

Verð 8.300.000 kr.

Eldsneyti / Vél                     Drif / Stýrisbúnaður

 

Dísel                                Sjálfskipting
4 strokkar                         Fjórhjóladrif
3.200 cc.                          Vökvastýri Veltistýri
170 hö. + tölvukubbur       ABS hemlar
Intercooler
2.520 kg.


Hjólabúnaður                     Farþegarými

                 7 manna   5 dyra
44" dekk                         Tauáklæði
                                       Hiti í sætum

Á nýjum dekkjum  keyrðum undir 200 km aukaraf ólíumiðstöð(webasto)
kastar og kastaragrind - tengi fyrir spil- spilbitar að framan og aftan 
2:70 hlutfall í milligír 4:88 drifhlutfall. Loftlás framan orginal aftan. Xenon aðalljós Vinnuljós, leitarljós og skíðafestingar á toppi. Kassi á afturhurð tölvukubbur stærri aðaltankur auka tankur um 200 l pláss


09.02.2012 16:50

Leit að strokupiltum

Piltarnir tveir sem björgunarsveitir leituðu að í kvöld eru fundnir. Þeir fundust í veiðihúsi við bæinn Skeggjastaði í Svartárdal, þar sem þeir höfðu brotist inn. Þeir eru heilir á húfi, en þrekaðir. Veður á svæðinu var ágætt en hiti undir frostmarki og súld. Drengirnir voru einnig afar illa búnir til útiveru.

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Húnavatnssýslum og Skagafirði voru kallaðar út til leitar á áttunda tímanum í kvöld, en þá var tilkynnt að þrír drengir hefðu strokið af meðferðarheimili í Skagafirði. Skömmu síðar gaf einn þeirra sig fram en talið var að hinir tveir hefðu farið í Svartárdal, inn af Húnaveri. Það reyndist rétt.

Um sextíu björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni og óku þeir slóða og leituðu í útihúsum við bæi í dalnum. Þeir notuðust meðal annars við nætursjónauka og sögðu þá hafa verið afar gagnlega við leit, þótt þeir hafi ekki endilega ráðið úrslitum.

http://mbl.is/frettir/innlent/2012/02/08/strokupiltarnir_fundnir/

  • 1
Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 21
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 54016
Samtals gestir: 17771
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 04:00:04